Thursday, November 23, 2006

Inn og út um gluggann

Miðríkið, 中国 (Zhong-guo) eða Kína eins og það er nefnt í daglegu tali, hefur enn á ný lagt blessun sína yfir Blogspot. Í tilefni þess koma tvær vísnagátur.

Í öllum bílum endast má
og afturgöngur mynda þá.
Sést á okkar skópörum
sem á ruðningsboltanum.

Úr hverju kom móðurmjólkin við
og merkir hluti, deild og svið?
Margir halir heita því
á hættustundu syngur í.

2 comments:

Hugosson said...

Fyrri er reim

Hugosson said...

og seinni geir eða geiri