Friday, April 22, 2005

Ugluspegill

Hér hefur Ugluspegill upp rödd sína. Hann mun tyrfa, nöldra, hrósa, þvaðra, slúðra, fjasa og kasta skít. Ugluspegli er einkum lagið að hneyksla samferðamenn sína þótt dæmi séu um hið gagnstæða. Rétt eins og segir í Völuspá:

Munu ósánir
akrar vaxa,
böls mun alls batna,
Ugluspegill mun koma.


Hér mun allt böl batna. Refilstigu reikað hefir Ugluspegill, en ekki lengur. Hann mun endurvarpa tíðarandanum og mannlífinu á síðu þessa. Og ólíkt mörgu öðru má sjá allt í Ugluspeglinum, líka hinn slæma tíðaranda eða hið vonda mannlíf. Það gerir hlutina áhugaverða.

9 comments:

Doddi said...

Megi Ugluspegill flysja loðinn sannleik og láta ljós sitt skína á safaríkt innihaldið! Þangbrandur fylgist spenntur með.

Arngunnur Árnadóttir said...

Hvaðahvaða!
Og verður hin síðan lögð niður?

Kristján Hrannar said...

Já, að öllum líkindum.

Harmsaga said...

Frú?! Frú?! Ég vil ekki vera e-r frú! Afhverju ekki ,,og herra" fyrir þá stráka? Afhverju ekki bara okkar réttu nöfn? Ég vil ekkert verða bara e-r frú þó ég eignist kærasta! Ég ætla bara rétt að vona að þú vitir að ég hef gert margt annað merkilegt en að vera kærasta! Frekar vil ég engan link!

Sigrún Hlín said...

En, Kristján þó! Ég hjó einmitt líka eftir þessu. Ég ætla rétt að vona að þú hafir bara verið að reyna að vera sniðugur, en ekki sú pungrotta og mannsjóvinisti sem maður gæti gert sér í hugarlund! Eða ertu kannski svona stafrófssinnaður? Ha? Já! Svaraðu! Mér er ekki skemmt.

Halla Oddný said...

ÞÚ ERT DAUÐUR.

Halla Oddný said...

Eða hvað fær þig til þess að nafngreina til dæmis Atla Frey Steinþórsson en ekki mig? Það gæti talizt eðlilegt ef Atli Freyr væri fornvinur þinn og fóstbróðir en ég þér alls ókunnug. Hins vegar hefði ég haldið (og vona það okkar allra vegna) að kynni þín af mér hafi verið að minnsta kosti jafnnáin - og helzt AÐEINS NÁNARI - en kynni þín við Atla, eins ágætur og hann annars er.

Nei, fjandakornið, Kristján. Án þess að ég brigzli þér frekar um ergi: Í samhljómi við síðustu ræðumenn bið ég heldur um algert tengilsleysi en að vera skilgreind sem "frú" einhvers annars og þannig flokkuð sem fylgihlutur, hattfjöður eða stofustáss!

Og passaðu þig bara, Femínistafélag Íslands gæti stútað þér í drive-by-shooting...

Kristján Hrannar said...

Ugluspegli er skemmt.

Þorsteinn said...

Ugluspegill? Og hvurslags var orðið svo klassískt... hvaða, hvaða.